Komið öll blessuð og sæl
Já það er mikið að maður gefur sér tíma til að setjast niður og blogga en ég ákvað að hespa það núna af í tíma á meðan ég hlusta á þessa yndislegu þjóðfélagsfræði
En svona til að setja ykkur bara aðeins inn í málin síðan síðast þá var undirbúningur brúðkaups Andrésar, bróðir Jóa og unnustu hans Hafdísar það sem tók mikinn tíma okkar vikuna eftir afmæli Margrétar Birtu
Þau voru gefin saman á afmælisdegi Jóa þann 15.september og sögðu þau bæði já
Þetta tókst allt vel og gekk vel fyrir sig, sem betur fer þar sem ég stjórnaði frekar mikið. Já ég var veislustjórinn, wedding plannerinn með Hafdísi, söngatriðið ásamt því að stelpurnar voru brúðarmeyjar
Já þetta tók sinn tíma í undirbúning og eru þau gift í dag, sem var jú málið með þessu öllu 
Annars er það að frétta að ég sagði upp vinnunni minn síðasta föstudagsmorgun en ég fór til læknis á fimmtudeginum eftir veikindi sem vildu bara ekki fara og sagði hann mig þjáðst af spennuhöfuðverk sem afleiðing af allt of MIKLU álagi
Hann sagði mig verða að minnka álagið ef ég ætlaði að geta lyft höfði frá kodda á næstunni ásamt því að þurfa taka inn bólgueyðandi, sem voru alltof sterkar að mínu mati. Þannig að í sameiningu tókum við hjónin þá ákvörðun að ég skyldi hætta að vinna þó svo þriðja hver helgi sé í sjálfur sér ekkert mikið, 4 næturvaktir í hverri törn. En þegar kom að því að mæta í skólann ósofin á föstudags- og mánudagsmorgun ásamt því að þurfa stundum að mæta í próf eða skila verkefni þá var það töluvert álag á mig
Ég er satt að segja ótrúlega sátt við ákvörðunartöku mína því ég get fengið vinnu hvenær sem ég vil og þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þessum helgum meir og yndislegt að vera í fríi eftir prófin um jólin
Stelpurnar voru svo hamingjusamar þegar ég tilkynnti þetta og er strax búið að plana bakstur um helgina
Já það er mikið að gera í skólanum og á ég náttúrulega bara æðislega foreldra sem aðstoða mig á allan hátt í svo ég geti staðið mig sem best í skólanum og er það ómetanlegt og gæti ég þetta ekki nema með þeirra hjálp, ja eða töluvert mikið erfiðara
Stelpurnar eru ekki ósáttar við að fá að vera hjá ömmu og afa sem gera alltaf svo vel við þær, hjálpa þeim að læra og ýmislegt fleira skemmtilegt
Þær eru svo báðar í fimleikum, Margrét er á mánudögum og miðvikudögum en hún mun trúlega á næstu hópum samt skipta um hóp þar sem hún var sett í rangan hóp, hún er langelst og með meiri líkamlega burði en hinar stelpurnar svo hún fer í annan von bráðar
Elín var að byrja líka og er á þriðjudögum, föstudögum og laugardögum og heyrði ég núna síðast að hún væri mjög efnileg eins og systir hennar
Þeim finnst þetta algert æði að vera í fimleikum og fá þær bara að halda því áfram eins lengi og þær vilja 
Jón Páll vaknaði svo í morgun ælandi og er hann samt svo duglegur að æla bara í klósettið en smá þvagleki er að birtast með þessu og er hann mjög sorgmæddur en pissar orðið alltaf í klósettið
Fyrir þá sem vita það þá er litli prinsinn hættur með bleyju og gerast orðið eiginlega aldrei slys og er hann oft þurr á morgnanna og biður um að fá að fara á klósettið, bara glæsilegt
Ætla að fá að leggja fyrir ykkur eina fyrirspurn og vil ég að allir þeir sem lesa bloggið svari mér, bara setja í athugasemdir. Ég er búin að vera velta því fyrir mér hvort ég ætti að stofna bara eina barnalandssíðu sem yrði fyrir öll börnin og fjölskylduna í heild sinni. Mér finnst fólk vera mjög latt að skoða síður barnanna og hvað þá kvitta og segja sumir að þeir nenni ekki að skoða þetta allt o.s.frv. Þannig að ef ég myndi opna svona síðu, mynduð þið skoða hana oftar og kvitta, ef þið þyrftuð bara að skoða eina og það yrði þá fjölskyldusíðan okkar ásamt blogginu okkar ????? Ég myndi samt halda síðunum þeirra opnum ef fólk vill skoða gamlar myndir en þarna mun ég setja inn myndir síðan síðari hluta Englandsferðar og áfram... þetta hjálpar mér líka töluvert mikið að þurfa bara að setja inn á eina síðu í stað þriggja
Ég ætla að hafa fréttir líka þar á vefdagbókinni en líka hérna á blogginu. Ég myndi þá skella henni inn sem fyrst og þá er það bara ein síða og ætla ég að ákveða lykilorð sem allir geta munað, semsagt eitthvað sem allir vita sem þekkja okkur, læt ykkur þá vita síðar með það en endilega commentið um hvað ykkur finnst um þetta, hvort þið myndum frekar fara og skoða og kvitta heldur en þið gerið nú ???
Kærar kveðjur
Fjölskyldan í Lönguhlíð 15