29.11.2004 21:40:17 / dagga603
Var veikur heima í dag! Var samt að reyna að koma að
einhverju gagni meðan Dagga er undirbúa sig fyrir prófin sem byrja
á miðvikudaginn.
Ég er svo að taka þátt í umræðu á Spjallinu hjá Þór um atvikið sem varð í leiknum á
laugardaginn. Menn eru ekki sáttir við það að áhorfendur
Þórsara eru gerðir að blóraböggli. Mér finnst að Ingó(fyrrum
KA-maður, núverandi Framari) eigi að fá nokkuð marga leiki í bann
miðað við framgöngu sína í leiknum. Í grein í fréttablaðinu í
dag er svo gert að því skóna að þetta sé gæslunni hjá Þór og
áhorfendum að kenna sem er að sjálfsögðu þvílíka bullið...
Rakst svo á síðu á netinu...kíkið á hana
JJ - Allur að hressast!
»
26.11.2004 11:53:18 / dagga603
Við hringtorgið á Borgarbraut eru hafnar framkvæmdir við nýja
Olís stöð en þess má geta að við hinn endann á Borgarbrautinni er
Olís stöð(í um 600 m. fjarlægð). Samkvæmt heimildum mínum þá
mun einnig rísa þarna Samkaupsverslun. Ég held að Olís sé
búið að vera með þessa lóð í 10 ár án þess að gera neitt. Svo
þegar Atlantsolía er farinn að hugsa sér til hreyfingar þá fer Olís
að byggja. Það sagði mér nefnilega maður að þetta væri
síðasta lausa skipulagða lóðin fyrir bensínstöð...
Mér finnst það slys að þarna á þessum stað skuli rísa einhver
búð og bensínafgreiðsla.
Akureyringar mótmælum þessum vinnubrögðum...við viljum fá tréin
aftur á sinn stað. Reisið þessa bensínbúð annarsstaðar.
JJ - á móti bensínbyggingum
»
23.11.2004 17:24:44 / dagga603
Vegna brunans í Reykjavík er ljóst að við fáum ekki Samsung
vörurnar sem við áttum að fá í morgun...sveiattann.
Tollgeymslan hefur verið lokuð í morgun en verður eitthvað afgreitt
á morgun...Annars er allt gott að frétta. Var í tíma í gær
hjá honum Erlingi. Hörkukennari þótt að hann sé ka maður
JJ - Eintómar brunarústir
»
22.11.2004 14:58:44 / dagga603
Um helgina var tekið og þrifið hátt og lágt. Ljóst er að
haldið verður áfram í þessu næstu dagana og þá aðallega í
bakstrinu. 
Menn eru allir að koma til...Mikið af fólki er búið að skreyta
hjá sér. Ég set e.t.v. einhverjar myndir inn á vefinn við
gott tækifæri...Er í Radionaust er verið að klára að skreyta og
allir að verða klárir fyrir jólin.
JJ - Jólahvað?
»
19.11.2004 13:13:52 / dagga603
Fólk er farið að skreyta heima sér og sér maður seríur poppa upp
í gluggum víðsvegar um bæinn.
Ekkert nema gott um það að
segja.
Dagga var búinn ákveða það að skreyta þann 20. nóvember og var
þetta ákveðið í lok september hjá henni....Þannig að ég verð
upptekinn eftir vinnu á morgun í jólaskreytingum....*\|:-)
JJ - Í jólastuði!
»
17.11.2004 15:03:20 / dagga603
Varð að láta ykkur vita af henni. http://isdickcheneydeadyet.com/
Gott mál annars að kennarar séu að hressast. Heyrði í
Reykjavík síðdegis í gær að skólastjórnendur voru beðnir um að fá
læknisvottorð hjá þeim kennurum sem ekki mættu á þriðjudag!
Gott mál...það á ekki að leyfa þeim að komast upp með neitt
múður.
»
15.11.2004 11:41:45 / dagga603
Þegar ég fór með stelpurnar í leikskólann í morgun þá mætti ég
mörgum nemendum sem voru á leiðinni heim úr skólanum. Skrifað
var undir viljayfirlýsingu um að kennarar eigi að fá 130.000
eingreiðslu o.s.frv. strax. Síðan láta menn skoðun sína svona
í ljós með því að skapa öngþveiti á þúsundum heimila með því að
vera "veik". Kennarar eru með þessu að senda skýr
skilaboð. Þeir lýsa vantrausti á forystusveit sína og afþakka
þessa eingreiðslu. Þannig les ég þetta. Lög eru sett í
landinu sem menn eiga að hlýða og fara eftir og kennarar sem
eiga að vera fyrirmynd barnanna okkar hundsa þessi lög.
Treystum við þessum kennurum til að kenna börnunum okkar? Ég
segi NEI! Ég vil að þessum kennurum sem óhlýðnast lögum eigi
að vera sagt upp.
Mótmæli kennara á Ísafirði finnst mér táknrænni og jafnframt
áhrifameiri og skapar ekki eins mikla óvild í garð kennara.
Þar mættu allir kennarar nema þeir sem voru svo sannarlega veikir
og allir voru þeir klæddir í svart. Ég tek að ofan fyrir
þessum kennurum á Ísafirði
JJ - ekki á leið í kennarann!
»
11.11.2004 12:40:46 / dagga603
Það má segja að búið sé að hengja vitlausan mann með því að
Þórólfur hafi "sjálfur" ákveðið að hætta sem borgarstjóri.
Þetta er eitt það vitlausasta sem R-listinn hefði getað gert.
Þórólfur er frábær viðskiptamaður og hefur staðið sig með prýði sem
borgarstjóri og sýndi hann það með Tal að hann getur sko rekið
fyrirtæki. Síðan kemur þessi "dúkkulísa" fram í dagsljósið
sem borgarstjóri. Ég verð að segja að m.v. viðtalið við hana
í Ísland í dag í gær þá er ég með það á hreinu að
Reykjavíkurlistinn verður ekki endurkjörinn við næstu
kosningar. Sjálfstæðismenn hlæja örugglega vel og innilega
innra með sér.
Fjölmiðlar ættu núna og grilla forstjóra þessara
olíufélaga. Það á að sækja þessa menn til saka og ætti sektin
sem Samkeppnisstofnun leggur til vera notuð í eitthvað nytsamlegt
eins og í heilbrigðiskerfið og menntamál.
Höfuðborgarsvæðið er í góðri aðstöðu til að sniðganga
olíufélögin með því að versla við Atlantsolíu. Ég vil fá
Atlantsolíu til Akureyrar og vil svo að fólk sniðgangi þessi
olíufélög. Þessar afsakanabeiðnir duga ekki, ekki nóg að taka
almenning í rassg**** í mörg ár og halda að ein heilsíðuauglýsing í
Fréttablaðinu lagi allt. Síðan fannst mér afsökunarbeiðni frá
Essó(held ég að hafi verið) út í hött. Það var mynd af
starfsfólki Essó og afsökunarbeiðni undir. Það voru ekki
bensíntittirnir sem ákváðu verðsamráðið. Þessi auglýsing var
til háborinnar skammar fyrir viðkomandi.
JJ - með olíu á eldinn!
»
09.11.2004 14:40:23 / dagga603
Nú er maður á fullu í jólaundirbúningi í Radionaust...Mikið að
gerast og mikið verður að gera á næstunni.
Ég held áfram í ræktinni og má vænta nýjustu talna á morgun...en
þetta hefur farið aðeins hægar niður en ég hélt...en samt
niður...tek mig enn meira á í mataræðinu...
kveð í bili...JJ
»
07.11.2004 21:10:01 / dagga603
Komum heim í morgun eftir að hafa gist hjá Gunna og Berglindi í
nótt. Þau er búin að koma sér vel fyrir í íbúðinni sem við
eigum út í Hrísey og öfundum við þau gríðarlega af íbúðinni enda
gríðarlega gott að vera þarna. Margrét Birta og Elín
Alma skemmtu sér gríðarlega vel!
Takk kærlega fyrir okkur Berglind og Gunni!
»
06.11.2004 00:45:19 / dagga603
Þórsarar stóðu sig gríðarlega vel þegar þeir unnu KA á mjög svo dramatískan hátt. Halldór Jóhann Sigfússon lét markmann Þórs verja frá sér víti í stöðunni 28-27 þegar fjórar sekúndur voru eftir á leiknum og Þórsarar fóru með sigur af hólmi!
Áfram Þór!
»
04.11.2004 16:40:39 / dagga603
Það verður aldrei hægt að segja að Bandaríkjamenn séu venjuleg
þjóð. Bush hefur farið offari í Írakstríðinu og ljóst er að
mannfall Bandaríkjamanna er meira eftir stríð heldur en var í öllu
stríðinu. Bush hefur sett stjórnmálasamband við nokkrar
þjóðir í hættu og ljóst er að Bandaríkin njóta ekki sömu virðingu
og þau gerðu hér áður fyrr. Einnig tókst Bush að setja met;
mesti fjárlagahalli í sögu Bandaríkjanna.
Ég sendi Bandaríkjamönnum mínar samúðarkveðjur og vill að lokum
benda á þessa slóð(þar sjáið þið afleiðingar þess að hafa kosið
Bush): en hann segir að allt fari í rúst eftir kosningar
2004. Þetta var maður á tímaferðalagi sem var á leiðinni heim
frá 1976 til 2036 og stoppaði við árið 2000.
http://johntitor.strategicbrains.com/TimeMachine.cfm
»
02.11.2004 12:44:38 / dagga603
Það er víst að styttast í leik Þórs og ka í handbolta. ka
vann fyrri leikinn og trúi ég því að Þórsarar sýni sitt rétta
andlit eins og á móti Val og vinni leikinn!
Það sem klikkaði í fyrri leiknum var m.a.: kjúklingaháttur í
sókninni og svo vörðu markmennirnir lítið sem ekkert. Mínir
menn bæta trúlega fyrir það.
Minni svo fólk sem langar að koma en ætlar að horfa á Idol að þá
seljum við videótæki hérna í Radionaust á 9.900 kr. Á
tækjunum er takki sem heitir REC sem gerir þér kleift að horfa á
Idol eftir að leik hefur lokið ef spóla hefur verið sett í tækið
áður en ýtt var á takkann.
»
02.11.2004 12:38:33 / dagga603
Ég var að hugsa um þennan hræðilega atburð sem gerðist í
Kópavogi í gær. Greyið börnin sem eru 1 árs og 4 ára.
Ekki nóg með að þau hafi missti mömmu sína heldur einnig verður
pabbinn í burtu þar sem hann framdi þetta voðaverk.
Ég sendi öllum aðstandendum mínar samúðaróskir og ljóst er að
þeim bíður ekki auðvelt verk að þurfa að útskýra þetta fyrir
börnunum.
»