Litla stóra fjölskyldan

Nú á Íslandi!

27.02.2008 00:08:07 / dagga603

http://daggapals.blog.is

Jæja gott fólk :haha:
Kíkkið á þessa síðu http://daggapals.blog.is þetta er síðan sem ég er búin að stofna & verður síðan mín ekki fyrrverandi okkar Jóa :haha: Loksins búin að opna mína eigin síðu & ætla að prufa að blogga þar um tíma í stað hér svo þar til annað verður tilkynnt hér, þá blogga ég ekki meir hér um tíma :haha:

Adios
Dagga


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 23:51:18 / dagga603

Tengdamamma orðin fimmtug

Já þá er hún Magga tengdamamma orðin fimmtug en hún átti afmæli í dag :haha: Við fórum í kaffi til hennar í dag & nutum dagsins í faðmi fjölskyldunnar :haha: Hún bauð innsta kjarnanum í matarboð í gærkveldi & var það náttúrulega bara hreinasta snilld & vorum við hjá þeim til að verða hálf ellefu þar sem við horfðum á úrslitin í eurovision keppninni á Rúv, ætla ekki að fara nánar í þá sálma :haha: Svo í kvöld fóru Magga & Nonni í leikhús ásamt vinum sínum úr matarklúbbnum en foreldrar mínir fóru einnig á sama tíma :haha: Við ásamt Svandísi, Ólínu, Andrési & co gáfum Möggu & Nonna saman afmælisgjöf en það var eitt stykki þurrkari & vakti það sko mikla lukku :haha: Það var sko byrjað að þvo á fullu & við erum svo ánægð yfir því hversu ánægð þau voru með gjöfina :haha: Við litla fjölskyldan bættum svo aðeins við gjöfina frá okkur & gáfum við henni í gær rósir, geisladisk & gulleyrnalokka :haha: Annars fékk hún mikið af fallegum gjöfum í dag, tvenns konar nudd, kertastjaka, gullhálsmen & eyrnalokka í stíl, blómaskreytingu, fullt af blómum & svo helgardvöl á Illugarstöðum :haha: Kannski eitthvað meira sem ég er að gleyma en þetta er það sem ég man :haha: Til hamingju elsku Magga mín með daginn & vonandi skemmtuð þið ykkur vel í leikhúsinu & bara ánægð með daginn í dag :haha: Elskum ykkur voða mikið & sendum fullt af kossum & kærleik til ykkar :haha:

Svo í dag átti líka Hrönn frænka afmæli en hún naut dagsins í faðmi fjölskyldunnar, amma & afi fóru suður ásamt bróðir hennar svo nóg var um manninn hjá henni örugglega :haha: Vona að hún hafi notið dagsins vel & vil ég óska henni kærlega til hamingju með daginn :haha: Ef þetta hefði lent á öðrum tíma þá er aldrei að vita nema maður hefði skellt sér suður en svona er þetta bara ;)

Á föstudaginn eftir skóla & líkamsrækt fór ég að vinna fyrir Möggu mína í Ultratone svo hún gæti nýtt daginn í bakstur & þrif & bara eitthvað annað en vinnu :haha: Um kvöldið átti svo eitthvað óvænt að gerast hjá mér en ég vissi að Jói væri með eitthvað planað en hafði ekki hugmynd um hvað :haha: Vissi bara að ég ætti að vera til um kl.20 :haha: Hann byrjaði á því að bjóða mér í ljós & gaf mér ljósakort, svo beint á eftir var farið með mig á Greifann & þar borðuðum við & svo fór minn bara að rúnta eitthvað með mig, gaf mér Brynju ís & hélt bara áfram að rúnta :haha: Ég sem var orðin SVO þreytt eftir daginn & dagana á undan var farin að lengja & spyrja hvort við ættum ekki bara að drífa okkur heim að hvílast en minn bara svaraði NEI nei :haha: Ég var farin að halda að hann ætlaði að bjóða mér í bíó en svo var klukkan orðin of margt í það & ég var farin að halda að hann væri að blekkja mig eitthvað en þá allt í einu um kl.22 fer hann inn á bílastæði fyrir neðan leikhúsið & drepur á bílnum & ég fatta ekki neitt & spyr bara af hverju við séum stopp hér :haha: Jói sagði þá að við værum að fara í leikhús & ég ætlaði ekki að trúa honum enda vissi ekki að leiksýningar væru svona seint sýndar :haha: En já við fórum semsagt  á leikritið "Fló á skinni " & mæli ég sko með því enda snilldarverk, viðurkenni að ég var orðin talsvert þreytt undir lokin & er það í fyrsta skipti sem ég var þreyttari en Jói & átti í erfiðleikum með mig undir lokum en ekki hann :haha: Yndisleg kvöldstund sem þessi elska hafði planað í kringum valentínusardaginn & vildi sameina þessa tvö atburði, valentínusardaginn & konudaginn í einn góðan rómó viðburð :haha: Þau gen vantar líka ekki í hann, þessi rómantík :haha: Takk elskan mín fyrir yndislegt kvöld  :haha: Love you :lol:

Set svo inn myndir á morgun inn á barnaland frá þessu öllu & fréttir af krökkunum en Elín keppti í fyrsta skipti í fimleikum á laugardaginn :haha: Fylgist með & kíkkið á myndirnar & lesið um krakkana :haha: Læt þetta nægja í bili :haha:

Knús & kossar til ykkar

Dagga & family

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 12:04:03 / dagga603

Loksins farið að róast & litli frændi 1.árs

Hæ hæ
Kannski að maður setji niður nokkur orð á meðan ég bíð hérna eftir að fyrirlestur á félagsvísindatorginu byrji :lol: Það hefur svo sem ekkert þannig mikið á daga manna drifið en svona eins & gengur & gerist hjá stórum fjölskyldum :lol: Langar svo að byrja á að óska honum Ivani Frey frænda mínum til hamingju með afmælið sitt en hann er 1.árs í dag & vildi maður óska þess að maður gæti notið þess með þeim um helgina þegar haldið verður upp á afmælið en svona er það bara ;) Innilega til hamingju með strákinn ykkar Aníta & Davor, hann er algert yndi :haha: Love you guys :lol:

Laugardagurinn fór í að ég vann í Ultratone fyrir Möggu, fór í ræktina þar á milli tíma & svo fór fjölskyldan til Andrésar & Hafdísar í mat en það var fyrsta matarboðið okkar hjá þeim & fengum við svínahamborgarahrygg, voða gott :lol: Við urðum að vísu að skilja Margréti Birtu eftir heima hjá Sædísi þar sem hún var ennþá með mikinn hita & illt í maganum :( En þær voru góðar saman veiku frænkurnar ;) Svo fór kvöldið bara í góða bíómynd & svo í bólið :d Sunnudagurinn fór í algera leti en elduðum samt kjúkling í hádeginu þar sem Sædís fór að vinna um kl.13 ;) Jói & Elín Alma fóru í afmæli til Ingibjargar Ástu um daginn & var ég með Margréti & Jón Pál heima 8| Sunnudagskvöldið fór svo í heimalærdóm & reddingu á barnapössun þar sem Margrét var eiginlega varla orðin hitalaus :s  & Jói var að fara suður með flugi um morguninn & kæmi ekki heim fyrr en á þriðjudegi :(Það reddaðist en amma & afi voru með Margréti & Gunna frænka þeirra var svo góð að ná í Elínu Ölmu í skólann & Jón Pál í leikskólann :d Elín Alma græddi aldeilis á þessu & fékk að fara með Gunnu til Andrésar langafa :d Ég náði svo í krakkana um kl.14:30 & fóru þau til Ólínu frænku sinnar á meðan ég lærði í skólanum til kl.18 :d Svo var brunað að ná í krakkana & í Drekagilið þar sem ég eldaði handa liðinu enda voru mamma & pabbi að koma í bæinn eftir Lundúnarferðina sína :d Við borðuðum saman & svo fór ég þreytt heim með þreytta krakka eftir daginn svo ég gæti haldið áfram að læra fyrir prófið mitt :$ Gærdagurinn fór bara í lærdóm, fimleika & mat í Drekagili :d Mamma & pabbi voru svo indæl að bjóða okkur í mat til sín þar sem ég nennti ekki að elda þar sem Jói kæmi ekki fyrr en um kvöldið heim :d Það var svo indælt að fá kallinn heim & var mikill léttir enda búið að vera voða mikið að gera, bæði ekki með hann né foreldra til að styðjast við & svo skóli & próf 8| Bíð ekki í svona aftur á næstunni ;)

Annars bara allt gott að frétta, mig er farið að hlakka til föstudagskvöldsins enda er víst eitthvað planað fyrir mig sem ég veit ekki hvað :d Jói búin að plana eitthvað & redda barnapíu & alles, verður örugglega æðislegt :d Jæja ætla að skella líka inn pínu lesningu á barnaland fyrir þá sem vilja lesa nánar um krakkana þá er það þar :d Ég er líka búin að vera bæta smá saman inn í myndirnar í febrúar albúminu, svo verið dugleg að kíkka :d

Skrifa aftur mjög fljótt
Adios
Dagga & family

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 19:32:16 / dagga603

Valentínusardagurinn & fimmta veikin

Það má segja að allt leggist á mann þegar maður má síst við því :whut: Í gær þegar ég náði í guttann minn á leikskólann tók við mér veikur lítill strákur með fimmtu veikina, já fimmtu veikina, þetta er ekki platveiki :$ Veikin lýsir sér með útbrotum í andliti & útlimum, stundum verkjum í fótum & hita :| Hann er semsagt með útbrotin en er þó hitalaus í dag en var það nú ekki í gær :d Og auðvitað gerist þetta þegar barnapíurnar mínar eru ekki á landinu 8|  Svo núna rétta áðan fer Margrét að kvarta & mín komin með hita. Það var samt eitt voða sætt sem gerðist í gær að ég bara verða að segja ykkur það því það kom mér sjálfri mjög á óvart :d Ég fór í ræktina eins & vanalega beint eftir skólann & var að flýta mér svo ég myndi ná að sækja stelpurnar á réttum tíma í skólann ;) Ég flýti mér út í bíl en í fjarlægð sé ég eitthvað inn í bílnum án þess að gera mér ljóst hvað sé í honum ;) Þegar ég nálgast hann meira sé ég hvar stendur rauð falleg rós hjá gírstönginni & miði um að ég eigi að taka frá föstudaginn í næstu viku :d Þetta bjóst ég eiginlega ekki við þar sem við höfum ekki haldið upp á valentínusardaginn síðan örugglega 2001 þegar sambandið var frekar nýtt ennþá þannig séð ;) Svona hlutir lífga alveg upp á daginn, alveg ótrúlega mikið :d

Um kvöldið var ég samt svo leiðinleg að skilja manninn minn eftir heima með börnin á meðan ég & bróðir minn fórum á söngkeppni VMA þar sem Sædís litla systir tók þátt & stóð sig bara vel stelpan :d Ég var nú eiginlega frekar uppgefin þegar heim kom um kl.23:30 en dagskráin byrjaði um kl.20 :d Einnig stóðum við allan tímann þar sem engin sæti voru laus en við komum samt 20 mín.fyrir átta 8| Rosalega góð mæting var enda fullt hús, þau voru nú ansi mismunandi atriðin en þau sem stóðu uppúr, sem voru ekki mörg, lentu í verðlaunasætum :d

Jæja en á morgun er ég svo að fara vinna fyrir Möggu tengdamömmu í Ultratone & langar svo að skreppa aðeins í ræktina & ef heilsan leyfir hjá fólkinu þá förum við til Andrésar & Hafdísar í mat :lol: Ætlum þá að taka daginn snemma & mæta um 4 leytið & hafa gaman :lol: Er búin að henda inn nokkrum myndum inn á barnaland & skrifa svo smá í vefdagbókina svo.... kíkkið.

Knús & kossar
Dagga

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 14:36:37 / dagga603

Pabbi 50 ára í dag :o)

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæl´hann pabbi, hann á afmæli í dag :d Já hann er sko fimmtugur kallinn í dag & einmitt núna þegar ég skrifa þessa færslu þá er hann trúlegast kominn til London ásamt mömmu, systur sinni & manni hennar, Hrönn & Gústa :d En Gústi mágur pabba á líka afmæli í dag & er einnig fimmtugur :d Mig langar að óska þeim báðum innilega til hamingju með daginn en reyndar óskaði ég þeim til hamingju kl.7:30 í morgun þegar við krakkarnir hringdum í pabba & voru þau þá bara að skoða sig um í fríhöfninni :d Mamma & pabbi eiga svo einnig 26 ára brúðkaupsafmæli í dag & langar mig að óska þeim líka til hamingju með daginn sinn :d Góða skemmtun elsku mamma & pabbi ( & auðvitað Hrönn & Gústi líka ) & njótið þess að vera laus við okkur í þennan tíma :d Love you :lol:

Annars er bara svona allt gott að frétta, helgin var róleg & fín, mamma, pabbi, Sölli, Sædís, tengdó, Svandís & Ólína komu í mat til okkar á sunnudaginn í buff & egg :lol: Allir voru mjög sáttir við það & eftirmatinn en þetta er með uppáhaldsmat sumra þar sem eggin heilla :lol:  Ég lærði aðeins um helgin en Jói var að vinna á laugardeginum & svo körfuboltaleikur á sunnudeginum :lol: Ef ykkur langar að vita eitthvað um krakkana þá farið á vefdagbókina þeirra á barnalandi & lesið :lol: Ætla að reyna setja nokkrar myndir inn í dag á barnaland ef ekki í dag þá strax á morgun :lol: Sædís systir er svo komin til okkar & verður hjá okkur þar til mamma & pabbi koma heim á mánudag :lol: Hún hefur að vísu lítið verið hér enda bæði skóli & söngæfingar en hún  ásamt vinkonum sínum eru að fara keppa í undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna í VMA á fimmtudaginn :lol: Ég & Jói ætlum að fara & hvetja þær stúlkur áfram & taka upp á videókameruna fyrir mömmu & pabba :lol: Svo set ég að sjálfsögðu inn myndir af henni inn á barnaland eftir keppnina :lol:

Skrifa svo fljótt aftur, ætlaði að skrifa í gær en var að læra undir próf, það gekk víst fyrir :lol:

Knús & kossar til ykkar allra
Dagga & family

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 23:56:45 / dagga603

Breytingar & nýtt fyrirkomulag

Jæja best að byrja strax á að segja að aðal fréttir af börnunum verða héðan í frá settar á vefdagbók okkar á barnalandi & er fyrsta færslan nú þegar komin inn :haha: Ákváðum að þar gætum við sett meira um krakkana þar sem sú síða er læst en ekki þessi, getum leyft okkur að segja meira & vitum líka að þeir sem komast inn á þá síðu þekkja okkur :haha: Hér verða semsagt svona yfirborðsfréttir af krökkunum & restin á barnalandi :haha:Erum líka búin að setja inn febrúar albúm & annað albúm með öskudagsmyndunum, endilega kíkkið á þær :haha:

Að öðru þá tókum við Jói þá ákvörðun núna fyrir stuttu að slútta ferðinni okkar núna í febrúar & þegar ákvörðunin var tekið var eins & fargi hefði verið lyft af mér :haha: Þetta var auka álag á ekki svo góðum tíma svo við ákváðum að taka pening & leggja til hliðar & leggja smá til hliðar á hverjum mánuði & gera dáltið..... Nei ég ætla ekki að segja nákvæmlega hvað en það er samt ferðalag & að öllum líkindum með krökkunum líka & það verður í kringum lok prófanna minna :haha: Ætlum ekki að segja frá því hér fyrr en dregur nær að þó svo foreldrar okkar viti hvað :haha: Krakkarnir fá ekki einu sinni að vita neitt fyrr en kannski 2-3 vikum áður en farið verður :haha: Vá hvað mig hlakkar til :haha:

Búið að vera voða mikið að gera enda mikið af verkefnum núna í skólanum & prófin mín byrja svo líka í næstu viku & verður þannig næstu vikur :haha: Næstum því eitt próf á viku, stundum fleiri & verkefnaskil :haha: Mér leiðist þetta samt ekki, nú er mikil hópavinna & það er bara skemmtilegt & svo eru líka skemmtileg fög núna :haha: Mikið hefur líka verið að gera hjá Jóa, Dekkjahöllinn opnaði líka í Rvk í byrjun vikunnar & Jói fær þá trúlegast fleiri & skemmtilegri verkefni :haha:

Berglind vinkona & Gunni eignuðust svo fjórða barnið sitt,strák  1.febrúar & fórum við að hitta þau um kvöldið :haha: Algert krútt & þau voru auðvitað alveg í skýjunum & óskum við þeim enn & aftur til hamingju með nýjasta meðliminn & hlökkum til að fara til Hríseyjar í heimsókn til þeirra :haha: Helgin var annars bara fín, vorum með bollukaffi á sunnudaginn þar sem tengdafólkið, foreldrar mínir & systkini & amma & afi mættu :haha: Á laugardagskvöldið fórum við upp í Vestursíðu til tengdó þar sem Kæja, systir Möggu & Magga voru með kynningu & fórum við fjölskyldan ekki heim fyrr en um kl.23 :haha:

Svo er vetrarfrí í skólanum hjá stelpunum & er þær núna í kvöld í góðu yfirlæti hjá ömmu & afa :haha: Þær sungu auðvitað í gær sem norn & engill, skoðið bara barnaland :haha: Svo styttist í að mamma & pabbi fari á vit ævintýranna & Sædís systir verður hjá okkur þá :haha: Ætla ekki að hafa þetta lengra núna en skrifa mjög fljótt aftur. Verið góð við hvort annað & hafið það gott :haha:

Knús & kossar

Dagga


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 19:00:26 / dagga603

Nýjar myndir á barnalandi

Hæ hæ

Vildi bara láta vita að ég setti inn nokkrar myndir neðst í janúar II albúmið :haha: Endilega kíkkið & svo kemur bara næst febrúar albúm :haha: Jæja skrifa meira seinna, ekkert sérstakt að frétta svosem nema bara nóg að gera í skólanum :haha:

Adios

Dagga


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 22:39:18 / dagga603

Helgin á enda

Jæja þá er enn ein helgin að baki & alltof fljót að líða líka :haha: Bóndadeginum eytt með famílíunni & borðuðum við nautalundir & nautafillet eldað á steini & ákváðu foreldrar mínir & systkini að borða líka með okkur :haha: Bara enn skemmtilegra, svo hér voru tveir steinar & fullt af kjöti & mikilli stemmingu :haha: Við krakkarnir gáfum svo Jóa eina dvd mynd í bóndadagsgjöf, mynd sem honum hefur langað í lengi, Wayne´s world :haha: Svo var horft á hana um kvöldið eftir skemmtidagskrá sjónvarpsins :haha: Á laugardeginum voru fimleikar hjá Elínu Ölmu eins & aðra laugardaga & þurfti Jói á fund hjá Samfylkingunni um 11 :haha: Fórum í búðir & fórum svo til tengdó í kaffi & auðvitað var Möggu minni í mikinn mun um að ég gæti eitthvað borðað & fór umræðan öll þann daginn í heimasíður um þessi efni & hvað hægt væri að gera mikið úr þessum efnum :haha: Get ekki verið ánægðari með hvað allir styðja mig í þessu, líður eins & heppnustu konu í heimi :haha: Svo var ákveðið fyrir tilstilli Ólínu að leyfa stelpunum að vera yfir nótt hjá henni & auðvitað ömmu & afa :haha: Við skruppum samt í afmæli kl.17 hjá Guðrúnu Margréti, 13 ára pía :haha: Jói meira að segja skrapp úr veislunni um kl.18 & bar út moggann & kom svo bara aftur :haha: Það voru pítsur, salat, flögur & ís í veislunni en ég hélt mig í salatinu þann daginn :haha: Svo fóru stelpurnar upp í Vestursíðu & við heim með litla gutta sem var að fíla það í botn að eiga okkur einn :haha: Við Jói spiluðum fullt & Jón Páll fékk að horfa á uppáhaldsefnið sitt í sjónvarpinu & var voða ánægður með það :haha: Sváfum svo til 10 um morguninn :haha: Ég bakaði svo brauð í hádeginu & tók með mér upp í Vestursíðu, en það var sko algjört æði & fannst fólkinu það líka gott :haha: Skruppum svo á tónleika í Glerárkirkju kl.16 þar sem æskulýðskórinn, barnakórinn, Hjalti söngvari, Ína söngkona & Birgitta Haukdal þöndu raddböndin & sungu fyrir okkur frábær disney lög :haha: Þetta voru fjáröflunartónleikar kórsins en þau eru að fara til Þýskalands í sumar :haha:

Svo styttist óðum í febrúar mánuð & það er sko busy mánuður :haha: Þá byrja hlutaprófin mín, pabbi 50 ára, Magga 50 ára, mamma & pabbi fara til London & við trúlega líka :haha: Annars er bara allt gott að frétta af öllum, sárið hjá Jóni Páli gróir vel, stelpurnar að brillera í fimleikum & fá svo að byrja í barnakór Glerárkirkju í næstu viku :haha: Jæja segjum þetta gott í bili, best að halda áfram að lesa fyrir morgundaginn :haha:

Bestu kveðjur

Dagga


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 10:09:51 / dagga603

Bóndadagurinn :o)

Til hamingju karlmenn með daginn í dag :haha: Ætli flestir karlmenn séu ekki búnir að tjá konum sínum það hvað þeir vilji fá að borða í kvöld, hvaða sjónvarpsstöð þeir vilja o.s.frv. :haha: Ég var ein af lélegu eiginkonunum & færði bónda mínum ekki morgunmat í rúmið enda frekar erfitt þar sem hann þarf að vakna um 5 leytið :haha: Var ekki að nenna því 8| Jón Páll var svo góður eða þannig & vaknaði um 6 í morgun en þar sem mogginn var ekki kominn fór Jói með strákinn okkar fram & setti Simpson myndina í með íslensku tali svo ég fengið að kúra örlítið lengur eða þar til hann færi í moggann :haha: Ég á náttúrulega bara yndislegasta & besta manninn fyrir mig :haha: Ég ætla samt að vera góð eiginkona í hádegi & fara með hann & leyfa honum að velja sér eitthvað að borða & svo fær hann góðan mat í kvöld :haha: Hann fékk að velja hvað yrði í matinn & urðu nautalundir fyrir valinu, ætlum að vígja steininn okkar & elda þær þannig, ætla meira að segja að gera bernaise sósu frá grunninum eins & á veitingastöðunum þar sem ég má ekki borða pakkasósuna :haha: Svo verður bara horft á góða mynd í kvöld í faðmi fjölskyldunnar & haft það kósý :haha:

Verð að segja frá einu sem gerðist í morgun :haha: Við vorum að taka okkur til & var ég búin að klæða Jón Pál í flíspeysuna & húfuna & fór inn til að slökkva ljósin & Jói & Jón Páll löbbuðu út. Svo fer ég út í bíl, búin að loka & allt & heyri að Jói er eitthvað að kalla á mig sem ég heyri ekki hvað :$ Þegar ég kem að bílnum þá sé ég hvar Jói er að dusta snjó af sokkunum hans Jóns Páls & segir skömmustulega að hann hafi farið með barnið svona út :haha: Segist ekki hafa athugað það hvort hann væri í skóm þar sem hann hélt bara að hann væri í skóm af því hann væri í flíspeysunni & í húfunni :haha: Svo Jói þurfti að hlaupa inn & ná í nýja sokka & útiskóna þar sem hann var orðinn vel blautur í fæturnar af að hafa labbað svona út í bíl :haha: Jói sagði að hann hefði ekkert sagt nema " úff detta " semsagt honum fannst hált greinilega :haha: Jón Páll var samt voða sár við pabba sinn & var í því að reyna dusta af fótunum sínum á meðan Jói hljóp inn & líkaði þetta ekki alveg :haha: Jebb svona getur fólk stundum verið að flýta sér þegar allir þurfa að vera komnir út í bíl 20 mín. fyrir 8 :haha:

Jæja karlmenn, njótið dagsins & látið konurnar snúast í kringum ykkur eins & þið getið & gerið svo slíkt hið sama við hana á konudaginn :haha: Jói & Jón Páll, við Margrét Birta & Elín Alma elskum ykkur endalaust & hlökkum til að eyða kvöldinu með ykkar :haha: Ekki má gleyma pabba & tengdapabba, bestu kveðjur til ykkar líka, okkur þykir líka rosa vænt um ykkur :haha:

Bóndadagskveðja

Dagga, Margrét Birta & Elín Alma


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 15:30:31 / dagga603

Nýjar janúar myndir á barnalandi :o)

Sæl veriði

Alltaf nóg að gera á þessum bæ en til að byrja með þá henti ég inn í gærkveldið nýjum janúar myndum inn á barnaland & eru þær í janúar II albúmi :haha: Í gærkveldi fór ég einnig með litla strákinn minn á slysadeildina en hann hafði skorið sig um daginn á dúkahníf :$ Þannig var mál með vexti að þau systkinin, Margrét Birta & Jón Páll sátu við skrifborðið í Drekagili & voru að teikna góð saman & svo heyrist allt í einu væl & þegar ég fer til hans sé ég bara blóð á hendinni hans :cry: Ég fór strax að reyna stöðva blæðinguna sem gekk treglega & róa hann niður en hann var nú alger hetja samt ;) Ég sá ekki þá hversu djúpt skurðurinn var en ákváðum að setja vel yfir þumalinn af plástrum til að stöðva blæðinguna :$ Margrét Birta var í meira sjokki heldur en hann & grét bara greyið & sagði þetta vera sér að kenna :( Hún tók nefnilega dúkahnífinn & ýtti blaðinu upp án þess að vita hvað þetta var, hélt þetta vera penna þar sem hann var svona mjór :$ Jón Páll ætlaði svo að rífa hann af henni um leið áður en hún náði að setja blaðið aftur niður & þannig atvikaðist þetta leiðindaslys nú :cry: Hann var bara brattur en hlífði puttanum & um kvöldið þegar ég ætlaði að setja nýjan plástur þá var ennþá blæðing & mér fannst þetta vera pínu djúpt svo ég fór með hann upp á slysó 8| Jón Páll stóð sig eins & hetja & leyfði þeim alveg að þrífa þetta, skoða, klípa í taug & alles án þess að væla eða neitt, alger hetja :haha: Læknirinn sagði hann ekki mega hafa farið dýpra hnífurinn né mikið til hliðar þar sem taug liggur þarna & hefði þá skorið á hana :$ Við eigum svo að halda þessu hreinu í viku & fylgjast með sýkingareinkennum en annars er hann bara fínn kallinn :haha:

Á mánudaginn fékk ég svo úr niðurstöðum blóðprufunnar & ætla ég ekki að fara útlista því öllu hérna en í stuttu máli þá koma allt vel út nema mótefnamælingin sem var eitthvað skrítin víst, svo ekki var hægt að segja af né á..... 8| Svo til að kanna það með fullkominni vissu er ég nú komin á glútenlaust fæði í að minnsta kosti 6 mánuði & fer þá aftur í magaspeglun & ef skeifugarnabólgan verður horfin þá er þetta einhvers konar glúten óþol, sem hann telur líklegast þar sem mér líður svo mikið betur núna án glútensins :haha: Þetta mun taka tíma að læra á allt þetta en það kemur & það að mér líður betur núna en mig hefur gert í svo mörg ár skiptir öllu :haha:

Jæja læt þetta nóg í bili, endilega kvittið svo í gestabókina hjá okkur á barnalandi & leyfið okkur að vita hverjir eru að skoða & fylgjast með okkur :haha:

Bestu kveðjur

Dagga


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 09:21:04 / dagga603

Loksins maður drattast að tölvunni til að blogga :o)

Jæja gott fólk, þá er enn ein vikan liðin & ég ekkert búin að blogga síðan fyrir viku síðan :$ Hef ekki alveg haft tíma en ákvað að gefa mér núna tíma á meðan frímínúturnar eru í skólanum :haha: Sit hérna í eigindlegum rannsóknaraðferðum & eftir þann tíma er ég búin í dag í skólanum :haha: Verð samt að sleppa ræktinni í dag þar sem strákurinn er veikur heima & er Jói bara heima núna á meðan ég fór í skólann :$ Hann er með hita & kvef en hann hlýtur að hrista þetta fljótt úr sér, það voru víst mikil veikindi í leikskólanum fyrir helgi :$

Síðasta vika var bara ágæt, Jói að vinna til 18 alla síðustu viku & svo á laugardaginn líka :haha: Höfðum það bara fínt um helgina, mamma, pabbi & Sædís komu í mat til okkar á föstudagskvöldið & horfðu á með okkur um kvöldið fjölskyldumynd & fóru ekki heim fyrr en um ellefu leytið :haha: Stelpurnar fóru svo í afmæli til vinkonu sinnar á laugardaginn & á meðan skruppum við hin til tengdó :haha: Tókum að okkur aukahverfi í mogganum sem ég & krakkarnir tókum um kvöldið & svo eftir hann var farið aftur til tengdó því stelpunum langaði að fara, enda misstu af því um daginn, & var keyptur ís handa liðinu :haha: Það var sko vel borðað af honum & var voða gaman hjá öllum en við fórum heim um tíu leytið til að baða liðið & koma þeim í háttinn :haha: Í gær komu svo foreldrar okkar, Svandís, Ólína, Sölli & Sædís til okkar í kaffi en ég hafði bakað heilan helling & það allt úr glútenfríu & var bara nokkuð gott :haha: Við vorum með súkkulaðiköku, gulrótarköku, vöfflur, epla-& marsipan múffur & jógúrtkökur & svo var þessu skolað niður með kakó eða kaffi :haha: Áttum bara notalega stund saman yfir öllu saman, alveg bráðnauðsynlegt að koma svona saman :haha:

Svo erum við hjónakornin að hugsa um að skella okkur til London í næsta mánuði, bara í nokkra daga :haha: Förum trúlega suður eftir skóla hjá mér þriðjudaginn 19.feb & út morguninn eftir & kæmum heim á konudaginn eða 24.feb sem er einmitt afmælisdagur tengdamömmu, verður 50 ára :haha: Fengum sko samþykki fyrir því að mega fara hennar vegna enda ætlar hún ekki að halda neitt upp á það :haha: Við ákváðum að nýta okkur gjafabréfið okkar sem við fengum þegar við keyptum bílinn okkar á síðasta ári en við þurfum að vera búin að nýta okkur það fyrir 15.mars & er þetta eini tíminn sem kemur til greina fyrir okkur, ja eða mig út af skólanum :haha: Ætlum bara að fara til að slaka á, skoða okkur um & skreppa kannski á sýningu & bara rómó ferð, kannski kíki smá í búðir :haha: Hlakka bara til að fá smá frí :haha: Mamma & pabbi verða svo góð að vera með börnin fyrir okkur en þau koma heim daginn áður en við förum suður :haha:

Jæja nóg í bili, verð svo duglegri með update á okkur héðan :haha:

Skólakveðjur

Dagga


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 23:45:32 / dagga603

Ný vika byrjuð :o)

Jæja best að byrja á að ég setti nokkrar fleiri myndir inn á barnaland, neðst í janúar albúmið :haha: Endilega kíkkið & auðvitað kvittið þær eru dáltið flottar, sérstaklega af þeim feðrum hér :haha:

Helgin var bara fín, afslöppun, þrif & góðar samverustundir með familíunni, getur það verið eitthvað betra, held ekki :haha: Saknaði þess samt að fara ekki í ræktina um helgina svo það er kannski bara spurning að við leitum kannski í geymslunni að snjótþotum & notum helgarnar í að fara í skemmtilega göngutúra með krökkunum, nota kannski fæturnar í stað bílsins til að fara í búð um helgar :haha: Var einmitt fyrsta helgin, vonandi af mörgum, sem ekki var keypt neitt nammi né gos :haha: Létum krakkana bara fá pening, 200 kr hvert & leyfðum þeim að ráða hvort þau notuðu hann í nammi eða setja í baukinn & þau völdu það sjálf að setja frekar í baukinn :haha: Krakkarnir eru meira líka fyrir popp & svala á kvöldin heldur en nammi, það meyglar svo bara hér upp í skápum þannig að þetta er bara fínasta lausn :haha: Ég bakaði svo æðislega súkkulaði köku hérna á laugardaginn til að hafa í eftirmat & var hún glútenfrí, semsagt notað glútenlaust hveiti, rosa góð bara :haha: Eins var nú pítsan okkar hjóna bara með spelti & engu geri & svo bara kjúkling & grænmeti :haha: Með betri pítsun sem við höfum smakkað, ætlum samt að prufa frekar glútenfría hveitið næst í pítsu þar sem ég virðist ekki þola speltið neitt voða vel svo maður prófar sig bara áfram :haha:

Ólína gisti hjá okkur á laugardagskvöldið & höfðum við það gott hérna með henni :haha: Svo á sunnudeginum fór Ólína & stelpurnar á flakk saman, í glerártorg & löbbuðu svo upp í Vestursíðu þar sem við komum svo öll saman & borðuðum saman :haha: Við komum með lasagna & salat & tengdó með grísalundir :haha: Yndisleg stund yfir góðum mat :haha:

Svo eru víst verkefnin að byrja á fullu í skólanum þótt hann hafi bara byrjað í síðustu viku, fyrstu verkefnaskilin eru á föstudaginn í afbyggingu, er að reyna koma mér inn í málin enda erum við 6 í hóp & eigum að skila verkefni saman :$ Annars er þetta bara fín byrjun, skóli & ræktin beint á eftir & samt búin flest alla daga kl. 13 með bæði :haha: Er líka komin á fætur á morgnanna um hálf sjö & bara miklu ferskari fyrir vikið & er meira að segja farin að prufa annað slagið að fara að sofa fyrir miðnætti :haha:

Jæja meira síðar, best að fara drífa sig í rúmið til að vera ferska í fyrramálið :haha:

Kveðja

Dagga


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 23:43:39 / dagga603

Góð helgi framundan

Jæja gott fólk

Er ekki bara spurning um að hafa notalega helgi :haha: Jú ég bara held það barasta :haha: Ég er svo ánægð & best að segja ykkur það líka að ég er formlega búin að standast alla áfangana mína þessa önnina & meira segja vel það í sumum :haha: Allar 15 einingarnar :haha: Náði prófinu sem ég fór í á miðvikudaginn & þar með búin að ná öllu saman :haha: Skólinn byrjaði á fimmtudaginn hjá mér & lá leiðin svo beint í Átak & tekið á :haha: Oh hvað það var gott & er þetta sko komið á stundaskrána með skólanum :haha: Fór heim & bakaði þetta frábæra speltbrauð, eldaði góðan mat, svæfði börnin & áttum svo notalega kvöldstund með tengdamömmu yfir speltbrauði & grænmetisbakka :haha:

Dagurinn í dag hjá mér fór að vísu að mestu í að liggja í rúminu með allt slökkt & teppi fyrir gluggum :$ Vaknaði svona í morgun, höfuðið þungt eins & blý, þoldi enga birtu & engin hljóð :haha: Með hjálp yndislegrar tengdamömmu & Ólínu gat ég náð þessu úr mér & seinnipartinn gat ég loksins farið á fætur & gert eitthvað :haha: Eldaði & naut svo kvöldsins með krökkunum & eiginmanni yfir skemmtilegri mynd & poppi :haha: Elín var í fimleikum í dag & kom heim með skrámur, bólgu & mar á hnéi eftir að hafa meitt sig í fimleikum en hún jafnaði sig nú um kvöldið :haha: Litla stelpan meiddi sig svo aftur í kvöld hérna heima á baðinu, hún rann til á baðherbergisgólfinu & datt aftur fyrir sig & lenti á sturtunni ( flísalagða kantinum meðfram sturtunni ) & fékk töluvert högg, hún er mikið rauð, bólgin & skrámuð en hún er svo mikill nagli að hún harkaði þetta af sér með hjálp kaldra bakstra & verkjastillandi krems :haha: Hún ætlar sér nú samt í fimleikana í fyrramálið þetta hörkutól :haha: Dagurinn á morgun fer í það að við fjölskyldan ætlum að þrífa íbúðina hátt & lágt eftir jólin, koma öllu í flott stand svo okkar daglega vikuplan í þrifum geti haldið áfram :haha:

Jæja góða nótt allir saman & hafið það gott um helgina :haha: Vildi bara láta vita að janúar albúm er komið á barnaland en ég gleymdi að nefna það síðast & enginn kvittar svo ég vildi bara nefna það :haha:

Kveðjur

Dagga & co


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 23:08:56 / dagga603

Svo er skólinn að byrja á morgun

Já skólinn að byrja á morgun en ég var samt í prófi í dag & ætla ekkert að segja um það hvernig mér gekk, maður veit það víst aldrei fyrr en einkunin kemur ;) Margrét Birta fór svo til læknis í dag með pabba sínum en tíminn var á sama tíma & ég var í prófinu í dag. Ástæðan var fyrir læknisheimsókninni var ekki alvarlega, bara varta á hæl en var á þannig stað & bara þannig að hún meiddi hana oft :$ Læknirinn skóf aðeins af henni & frysti & sagði henni svo að fara í fótabað á tveggja daga fresti, nota rasp & svo vörtuplástur yfir :haha: Hún sagði mömmu sinni það sko um leið & ég kom úr prófinu hversu hugrökk hún hefði verið hjá lækninum :haha: Hún var voða stolt af sjálfri sér & má sko alveg vera það :haha: Hún fór svo gallvösk í fimleikana í dag & fékk þá þær upplýsingar að það væri búið að setja hana í annann hóp & æfir hann á þriðjudögum frá kl.18-19 & á miðvikudögum frá kl.16:30 - 17:30 :haha: Leiðinleg tímasetningin á þriðjudögum en sem betur fer bara einu sinni í viku þannig :haha:

Ég ætla svo að fara snemma að sofa í kvöld, semsagt bara núna eftir smá stund þar sem skólinn hjá mér byrjar kl.8:10 í fyrramálið & svo bara ræktin strax á eftir :haha: Oh hvað mig hlakkar að byrja aftur í ræktinni, það er svo gott að hreyfa sig svona á hverjum degi, ég virkilega þarfnast þess að fá meiri orku & vonandi betri svefn með þessu til að þessi önn verði mikið betri en sú fyrri :$ Hún gekk en vildi að hún hefði gengið betur, erfitt oft að sætta sig við 6,7 & 8 þegar maður er vanur 8,9 & 10 en það er bara planið núna :haha:

Jæja ætla að drífa mig í bólið, taka til fyrir daginn & morgun & ná góðum svefn þar sem síðasta nótt fór í lærdóm :haha:

Skólakveðjur

Dagga


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 02:07:44 / dagga603

Rútínan á ný :o)

:haha:Já nú er allt að komast í vanann aftur, það er bara ágætt þó svo ég eigi eftir að sakna til að byrja með ljósanna sem prýða bæinn í þessu myrkri ;) Ég er búin að vera í dag að taka niður jólaskraut & ganga frá því & þvílíkur tómleiki á heimilinu, manni finnst heimilið vera orðið tómt :( Á vissan hátt er þetta fínt, auðveldara að þrífa en það var orðið mikið erfiðara þar sem við erum ekki í það stórri íbúð en þetta var nú samt svo notalegt að hafa alla þessu fallegu jólamuni & jólaljós uppi, það lýsti alveg upp dimmasta tímann :haha: Sem betur fer er víst daginn að fara að lengja aftur :haha:

Annars fór helgin bara í algera leti, fórum á föstudaginn í afmælisveislu til Ólínu, systir Jóa, en hún var 14 ára þá :haha: Auðvitað á ég bara bestu tengdamömmu í öllum heiminum & haldið ekki að hún hafi hugsað helling um mann, bakaði 2 tertur ásamt heitum rétti úr spelti svo ég gæti nú fengið mér líka :haha: Gull af konu, ekki annað hægt að segja um hana :haha: Á laugardeginum var bara haft það fínt, sofið út & slakað á :haha: Stelpunum var svo boðið í náttfatapartý til vinkonu sinnar, Söru Berglindar en hún hefur fengið að gista hjá okkur & verið mikið að leika við þær & einstaka sinnum verið hér heilan dag :haha: Þær fóru um kvöldmataleytið & borðuðu pítsu & voru ekki komnar heim fyrr en kl.16 daginn eftir :haha: Það var voða skrítið að hafa þær ekki hjá okkur en voða rólegt samt & naut Jón Páll þess að eiga okkur með húði & hári :haha: Fórum seint að sofa & vöknuðum seint, bara dekur :haha: Borðuðum svo góðan mat um kvöldið & fórum svo til mömmu & pabba í smá tertu & leyfðum krökkunum að fara út hjá þeim & halda á blysum, afgangnum síðan á gamlárskvöld :haha: Krakkarnir fóru svo ánægðir heim & beint í rúmið, enda skóladagur daginn eftir :haha: Svo er bara foreldradagur á morgun þannig að þær verða heima með múttunni sinni á morgun & svo förum við Jói með þær í viðtöl kl.13 & 13:20 :haha: Fáum örugglega bara góðar fréttir af þessum englum okkar :haha: Fyrsta fimleikaæfingin á þessu ári var svo í dag & fór Margrét Birta á hana kl.17 & með svo stórt bros enda í nýja fimleikabolnum, stuttbuxunum & í nýja henson fimleika gallanum á leiðinni :haha: Það einfaldlega geislaði af henni :haha: Elín fer svo á morgun á æfingu :haha:

Ætli maður læri svo ekki eitthvað fyrir þetta blessaða rökfræðipróf á morgun en ég fer í það á miðvikudaginn & svo byrjar bara skólinn á fimmtudaginn, hlakka bara til :haha: Ég er svo heppin að ég byrja eiginlega alltaf í skólanum kl.8 & er búin frá 11-12 á morgnanna svo maður kemst beint í ræktina áður en þarf að ná í börnin í skóla & leikskóla, bara fullkomið :haha: Er ekki áramótaplanið hjá flestum að komast í form, það er ekki neitt plan hjá mér, bara byrja & svo sér maður hvernig fer.... ;) Þá verður maður ekki fyrir neinum vonbrigðum með sjálfan sig yfir að hafa brotið heitið sem maður gaf :haha:

Hafið það svo gott & takk kærlega fyrir upplífgandi viðbrögð við síðustu færslu, gott að vita að maður á góða að & ég er sko alveg hætt að hafa neinar áhyggjur, þetta fer bara eins & það fer & verður bara fínt á hvorn veginn sem er :haha:

Nýárskveðja

Dagga


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 91299
Dagsetning
28. janúar 2012
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 27 febrúar
Klukkan